|
|
28.03.2008 09:09:44 / vigdis
Var að setja inn myndir frá páskunum og afmælinu hennar Erlu  www.vigdis.vefalbum.is
Góða helgi
»
07.03.2008 11:55:33 / vigdis
Var búin að lofa Elínu að vera dugleg að blogga þar sem hún er í Grikklandi, er ekki alveg búin að vera að standa mig enda hefur nú voða lítið verið í gangi.
Dreif mig í að setja inn myndir á myndasíðuna mína frá því í janúar og febrúar, er samt orðin frekar slöpp í myndatökunum. www.vigdis.vefalbum.is Ætla nú að taka mig á í því enda alltaf gaman að skoða myndir 
Við í vinnunni erum búin að skrá okkur á www.lifshlaupid.is og erum við bara að standa okkur nokkuð vel. Þannig að núna þýðir ekkert annað en að vera dugleg að æfa því ekki vill maður draga liðið sitt niður.
Loksins er að koma helgi, þessi vika er búin að vera frekar löng, maður er ekki að koma heim til sín fyrr en kl ellefu á kvöldin þar sem maður er að vinna eða á æfingum langt fram á kvöld, þarf reyndar að vinna í kvöld en vona að ég geti slappað af á morgun. Planið á morgun er að rölta laugarveginn með Erlu og Andreu, orðið ansi langt síðan maður hefur gert það, vona bara að veðrið verði fínt.
Jæja, hef ekki mikið meira að segja nema bara góða helgi 
kv. Vigdís
»
17.01.2008 15:09:54 / vigdis
Var búin að blogga voða flott en þá datt allt út þannig að þetta verður bara stutt, er bara ekki að nenna að skrifa allt upp aftur  Vil bara að óska ykkur gleðilegt nýtt ár þar sem ég er ekki búin að blogga síðan í fyrra.. En núna er allt komið á fullt eftir jólafríið, handboltaæfingarnar hafa verið öflugar á nýja árinu og fyrsti leikur ársins á morgun við HK. Skólinn byrjar í næstu viku, en ég er búin skrá mig í 9 einingar þessa önn, þannig að það verður nóg að gera næstu mánuði. Á laugardaginn verður loksins haldið fjölskyldupartý stórfjölskyldunnar Brandsson, búið að liggja niðri í nokkur ár en kemur sterkt inn í ár, við stelpurnar tókum okkur til og leigðum OR salinn í elliðaárdal, það verður voða flott hlaðborð og að sjálfsögðu brjálað fjör.. Hlakka mikið til  En í kvöld munu þessir ásamt fleirum eiga hug minn allan
Ísland-Svíþjóð kl:19:15 ÁFRAM ÍSLAND
»
24.12.2007 10:04:09 / vigdis
Gleðileg jól 
»
26.10.2007 11:05:24 / vigdis
Ákvað að skella inn bloggi í tilefni dagsins.. Ellý og Bára eiga báðar afmæli í dag og vil ég óska þeim innilega til hamingju með daginn  Það eru alveg margar vikur síðan ég setti eitthvað inn hérna síðast og nenni nú ekki að fara að skrifa einhverja ritgerð um hvað sé búið að gerast síðan þá, ætla bara að stikkla á stóru Fór á þjóðhátíð Bústað með stelpunum Búin að fara í fullt af partýum Byrjaði í skólanum Árshátíð Gagnavinnslunnar Spilaði bikarleik í handboltanum Árshátíð Orkuveitunnar Er einnig búin að dunda mér við að setja inn fullt af myndum á nýju myndasíðuna mína, það er hægt að kíkja á myndirnar hérna einnig er linkur hérna til hliðar. Lífið þessa dagana er bara fínt, reyndar kannski búið að vera aðeins of mikið að gera en allt að róast núna.. Lífið er bara vinna, skóla og æfingar.. ætla nú aðeins að breyta til um helgina og er að fara á spurningakeppni OR í kvöld og svo útskriftarveislu hjá Elínu annað kvöld. Góða helgi  kv. Vigdís
»
27.07.2007 11:48:43 / vigdis
Vá
hvað ég er orðin eitthvað léleg í blogginu, nenni nú ekki að
hafa þetta langt núna, en ég er er vesenast í að koma
myndunum inn á netið, skelli linknum inn um leið og þetta er
reddý.
Annars
er helgin bara framundan, verð nú bara róleg í kvöld og svo er
strandhandboltamótið á morgun, við fjölnisskvísur ætlum að
sjálfsögðu að vera með.. spilum 3 leiki og svo verður djamm um
kvöldið.. verður pottþétt mikið fjör 
Síðan
eru það bara eyjar um næstu helgi.. geggjað 
kv.
Vigdís
»
13.07.2007 13:26:28 / vigdis
Þá
er marr mætt aftur á klakann, það var rosalega gaman í
króatíu, nenni nú samt ekki að skrifa inn ferðasöguna núna
þannig að þið verðið að bíða betri tíma. Ætla að klára að
henda inn myndunum úr ferðinni um helgina.
En
annars verður helgin örugglega bara nokkuð góð, afslöppun í kvöld..
Bæjarferð, partý og djamm á morgun og svo bara afslöppun á
sunnudag.. þetta er planið allaveganna en hvað ætlar þú að
gera??
Góða
helgi 
»
16.06.2007 22:28:56 / vigdis
Farin til Króatíu
So long suckers 
»
30.05.2007 11:12:08 / vigdis
3
daga helgin var sko ekki lengi að líða, sem er reyndar bara
eins og allir aðrir dagar.. tíminn gjörsamlega flýgur áfram
þessa mánuðina..
Mikið
rosalega skemmti ég mér vel á síðasta föstudag, við stelpurnar í
vinnunni hittumst heima hjá Báru um sjöleytið og borðuðum saman,
elduðum kjúlla, franskar og sveppasósu mmmm það var gott.. síðan
var bara tjúttað fram eftir nóttu, skelltum okkur á Deco og var
mikið fjör þar á hópnum.. kíkti yfir á celtic og hressó en var
komin heim um fjögur, sátt eftir skemmtilegt kvöld Ætla að fá
Báru til að senda mér eitthvað af myndunum sem voru teknar þetta
kvöld.. langt síðan marr hefur sett inn myndir
Restin
af helginni fór í sumarbústaðarferð, leti og bíóferð.. Já við
systur fórum að sjá Jack Sparrow og félaga, fannst myndin bara
nokkuð góð 
En áður
en við fórum í bíóið ákváðum við að fá okkur að borða á
Pizza hut í smáralindinni, af hverju er marr alltaf að gera sömu
mistökin, við vorum komnar þar inn kl: 14:10, það var setið á svona
5 borðum þar inni, stelpan kom og tók niður pöntunina kl 14:20 og
ég spurði hvað það tæki langan tíma að fá matinn og hún segir svona
10-15 mín. sem var bara fínt þar sem við vorum að fara í bíó kl:15
en tíminn leið og klukkan var orðin 14:45 þegar Erla spyr hvort það
sé langt í matinn, stelpan segir að hún ætli að tjékka á því en
bara fer í burtu og lætur okkur ekki vita. Svo kl:14:55 kemur
stelpan með brauðstangirnar sem Erla pantaði en ég hafði pantað
pizzu og spyr um hana, og þá segir hún, ó átti þetta að koma
saman.. en sem betur fer var pizzan nú tilbúin þannig að hún kom
með hana.. en við höfðum sem sagt svona 3 mín til að klára matinn..
skildum helminginn næstum því eftir.. Er eðlilegt að það taki meira
en 30 mín að búa til litla pizzu og skammt af brauðstöngum.. Held
að stjórnendur á Pizza Hut þurfi aðeins að fara að athuga
starfsmannamálin hjá sér.. hef heyrt frá svo mörgum um lélega
þjónustu á Pizza hut. 
18 dagar
í Króatíu Geðveikt
kv.
Vigdís
»
25.05.2007 13:28:14 / vigdis
Vúppidú.. vinnuvikan bara alveg að verða búin og 3 daga
helgi framundan, ekki amarlegt lífið þessa dagana

Í kvöld
verður ekkert slakað á heldur ætlum við OR skvísur ásamt fleirum að
hittast heima hjá Báru systur, ætlum að borða saman og djamma svo
langt fram á nótt Er alveg komin með fiðring í magann af
spenningi.. þetta verður brjálað fjör 
Um
helgina er svo planið að fara upp í bústað til ömmu að hjálpa til í
garðinum og bara gera það sem þarf að gera, verður fínt að komast
aðeins út úr bænum og í sveitasæluna.. farin að hlakka til þess
líka.. vá bara mikið til að hlakka til þessa helgina..
En hvað
ætlar þú að gera um helgina?
Góða
helgi 
kv.
Vigdís
P.S. 22
dagar í króatíu.. 
»
21.05.2007 10:14:10 / vigdis
Helgin byrjaði á því að við systur vorum komnar til
Ásdísar í grillveislu rétt yfir sjöleytið, ætluðum nú að
stoppa stutt þar sem handboltapartýið átti að byrja snemma en
nei við vorum ekki komnar þangað fyrr en kl tíu, vorum ekki
að tíma taka leigubíl þannig að við bara drukkum á meðan
við vorum að bíða eftir fari. Þegar við komum til Röggu var
nú allt í rólegheitunum og marr hélt áfram að drekka, ég bara
man ekki eftir því að hafa drukkið jafn mikið alkahól og
þetta kvöld enda fékk ég sko þokkalega að kenna á því daginn
eftir..
En
partýið var nú samt skemmtilegt eins og alltaf þegar þessar stelpur
koma saman, Lína var síðan svo góð að gefa okkur far í bæinn, fórum
á celtic og skemmti ég mér bara mjög vel eins og vanalega.. tók
síðan skutluna heim með Ásdísi og Tinnu 
Laugardagurinn fór í ekkert annað en þynnku, meikaði ekki einu
sinni út á videoleigu en ég lifið þó daginn af 
Í gær dreif ég mig í bíó með Einari bróður, fórum á
spiderman 3, úff þvílík leiðindi Um kvöldið var matarboð hjá
mömmu og pabba, alltaf jafn ljúft að fara í mat til þeirra
endaði síðan bara helgina upp í sófa og horfði á hann Jack Bauer
vin minn í 24.
Ég er
varla að trúa því að það sé bara mánudagur og heilir 5 dagar
framundan í vinnu, skúringum og æfingum... endalaust stuð

En
hvernig var helgin ykkar??
kv.
Vigdís
»
18.05.2007 16:03:44 / vigdis
Er
að fara í handboltapartý í kvöld og verður örugglega alveg
heljarinnar fjör ef ég þekki þessar skvísur rétt, síðan var
planið að skella sér á player, stóhljómsveitiin vinir vors og
blóma leika fyrir dansi.. ekki amarlegt það Restin af
helginni algjörlega óráðin en vil bara enda á að segja góða
helgi öll sömul 
Vigdís

»
15.05.2007 14:35:59 / vigdis
Kannski komin tími á smá blogg..
Búið að
vera mikið að gera upp á síðkastið, prófin kláruðust í síðustu
viku, búin að bæta 3 einingum í safnið, vona bara að hinar 3 komi
líka, fæ örugglega út úr seinna prófinu í vikunni. Ótrúlega skrítið
að vera búin í prófum og ekki þurfa að hafa samviskubit yfir að
vera ekki að læra.. en það er rosalega gott 
Þótt að
ég var í prófum var nú ekkert slakað á í djamminu.. en það var
tekið extra vel á því núna um helgina.. skelltum okkur á grillkvöld
hjá OR á föstudaginn, ætluðum nú bara að fá okkur að borða og
kannski drekka nokkra öllara.. en það endaði með heavy djammi og
marr skreið ekki heim fyrr en um kl 6 um morguninn.. en það var
rosalega gaman Á laugardeginum vaknaði ég nú bara nokkuð
hress enda annað djamm framundan um kvöldið.. Hafði gleymt að fara
í ríkið og að fara þunn í ríkið er ekki alveg að gera sig en marr
lét sig nú hafa það Við systur, Kjartan og Elín vorum svo mætt
til Andreu í eurovision partý um 7 leytið. Elín var sú eina sem var
með hressleikann enda ekki búin að djamma frá sér allt vit kvöldið
áður en við hin jöfnuðum okkur svona hægt og rólega þegar á leið
kvöldið og birgðirnar.. Var nú bara alveg sátt við úrslitin
í eurovision enda kaus ég Serbíu, flott lag
Við Elín
fórum svo á Nasa ásamt örugglega 3000 öðrum, shit hvað það var
troðið, en við dönsuðum alveg fullt og ég skemmti mér alveg
ljómandi vel.. endaði svo á Hlölla með Ellý og við biðum eftir
leigubíl í örugglega svona 40 mín en þegar ég heyrði að fólk var að
bíða í 1 og hálfan tíma eða lengur þá er ég nú bara sátt við 40
mínúturnar.. 
Þegar ég
vaknaði á mánudagsmorguninn var nú erfitt að fara á lappir og svo
fattaði ég það að það væri langur vinnudagur framundan, það var sko
ekki að hjálpa, en dagurinn leið bara nokkuð hratt og örugglega,
skellti mér meira að segja á æfingu, skil nú ekki hvaðan sá kraftur
kom en bara sátt.. Planið að fara á æfingu aftur á eftir, núna er
tími til komin að fara að taka sig á í æfingunum, enda bara mánuður
í brottför til Króatíu.. vá hvað ég hlakka til 
Á morgun
er síðan eiginlega bara föstudagur þar sem það er frí á
fimmtudaginn oh hvað það er ljúft En það verður bara slakað á
annað kvöld, við systur erum að spá í að skella okkur í bíó á nýju
myndina með Hilary Swank The Reaping.. örugglega góð
mynd
Aldrei
að vita nema að ég skelli inn færslu á föstudaginn, enda
helgin þá framundan 
Vigdís
»
04.05.2007 14:43:44 / vigdis
Góða helgi 
»
30.04.2007 14:11:12 / vigdis
Helgarfríið nýbúið og aftur að koma frí..

Þetta
var alveg ágætishelgi, við fjölskyldan skelltum okkur í leikhús á
föstudaginn og sáum afmælissýninguna hans Ladda og skemmtum okkur
alveg glimrandi vel 
Laugardagurinn var nokkuð góður, við Erla byrjuðum á því að
fara á æfingu og komum síðan heim og þrifum alla íbúðina, ég var nú
mikið í einhverju dúllerí inn í herbergi og klukkan var allt í einu
orðin fimm og þá var bara komin tími til að fara að hafa sig til
fyrir kvöldið.. Vorum mættar til Hörpu og Gurru um níuleytið, vorum
mættar fyrstar sem er náttla bara klassi fólkið týndist inn hægt
og rólega en gaman að hitta allar stelpurnar.. Við Ellý, Anna og
Hildur drifum okkur svo í annað partý niðri í bæ hjá frænku Önnu og
Ellýar, við Ellý löbbuðum svo á Deco, Ellý orðin vel í glasi og var
nú frekar skemmtilegt að fylgjast með henni, getið lesið um
decoferð hennar hérna . Þetta
endaði með því að hún fór heim og ég var nú ekki alveg tilbúin að
fara heim strax, þannig að ég rölti upp á celtic og var komin heim
um hálf sexleytið. Heilsan í gær var nú betri en oft áður, við
systur fórum í mat til mömmu og pabba, lasagne hennar mömmu
klikkar aldrei, síðan var bara sjónvarpsgláp í gærkveldi.. góður
endir á fínni helgi 
Náði
loksins í enskukennarann minn í morgun þannig að munnlega prófið er
búið og gekk það bara alveg ágætlega, fékk 8,5, er bara sátt við
það. Ég er ekki mikið að stressa mig þegar ég er að fara í próf en
var eitthvað extra stressuð fyrir þetta munnlega próf en sem betur
fer er það nú bara búið og allt í góðum málum 
Í kvöld
ætla ég að kíkja á tónleika á hressó með Ellý og félugum,
hljómsveitin Light on the highway er að spila, verður fínt að kíkja
smá út, ætla nú bara að vera á bíl þar sem próflesturinn tekur við
á morgun 
Eníhú þá
ætla ég að halda áfram að vinna
síja
Vigdís
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|